Þjónusta og ráðgjöf
Kvarði leggur áherslu á góða samvinnu við viðskiptavini og meðhönnuði og stuðlar þannig að því að verkefni, stór sem smá, gangi upp á sem hagkvæmasta hátt.
Ráðgjöf
Kvarði býður upp á ráðgjöf til að ná fram hagstæðari rekstrarkostnaði og endingabetri lagnakerfum og stuðla þannig að því að nýta betur þá orku sem náttúran gefur okkur.
Þarfagreining og áætlunargerð
Kvarði býður upp á þarfagreiningu hvort sem um er að ræða hönnun nýrra lagna- eða loftræsikerfa, sem og úrbóta á eldri kerfum.
Fráveitukerfi
Kvarði tekur að sér hönnun fráveitukerfa, hvort sem um er að ræða einfaldari fráveitukerfi eða stærri og flóknari fráveitukerfi með tilheyrandi hreinsikröfum.
Hita-, neyslu- og snjóbræðslukerfi
Kvarði tekur að sér hönnun hita-, neyslu- og snjóbræðslukerfa. Þarfir verkkaupa og hagkvæmi við rekstur kerfa eru ætíð höfð að leiðarljósi við þarfagreiningu og hönnun.
Vatnsúðakerfi
Kvarði tekur að sér hönnun vatnsúðakerfa, við hönnun er haft að leiðarljósi áreiðanleiki kerfa upp á öryggi og til að lágmarka tjón á byggingu og búnaði. Við hönnun vatnsúðakerfa er leitast til að ná fram hagkvæmri uppbyggingu á kerfum.
Loftræsikerfi
Kvarði tekur að sér hönnun loftræsikerfa, við hönnun er haft að leiðarljósi innivist byggingar þ.e.a.s. vellíðan og heilsa notenda. Við hönnun loftræsikerfa er hagkvæmni við
rekstur og orkunotkun kerfa stór partur af réttri hönnun kerfa.
Ástandsskoðanir og kostnaðarmat
Kvarði tekur að sér ástandsskoðanir, leggur til úrbætur og metur kostnað við úrbætur.
Önnur lagnakerfi
Sundlaugakerfi
Kvarði tekur að sér hönnun heitapotta- eða sundlaugakerfa hvort sem um er að ræða uppbyggingu „náttúrulauga“ eða sundalaugakerfa með fullkomnu hreinsikerfi.
Gaskerfi
Kvarði tekur að sér hönnun ýmissa gaskerfa hvort sem er að ræða arinn í stofuna eða gaskerfi í lækningaskyni.
Þrýstiloftskerfi
Kvarði tekur að sér hönnun og ráðgjöf á þrýstiloftskerfum, hvort sem um er að ræða þrýstiloftskerfi fyrir handverkfæri eða flóknari búnaði.
Varmadælukerfi
Kvarði tekur að sér hönnun og ráðgjöf á varmadælukerfum hvort sem um er að ræða kerfi fyrir sumarhúsið eða sveitafélög.
Vatnsveitur
Kvarði tekur að sér hönnun og ráðgjöf á uppbyggingu á minni vatnsveitum.
Vatnsaflsvirkjanir
Kvarði tekur að sér rennslishönnun og ráðgjöf við uppbyggingu á smávirkjunum, hönnun felur m.a. í sér stærðarákvörðun á miðlunarlóni, safnþró, þrýstipípum og rennsliskurðum.