Um Kvarða
Fyrirtækið Kvarði ehf var stofnað árið 2016 utan um lítinn útgerðarekstur en haustið 2022 var starfsemi fyrirtækisins breytt í Kvarða Tækni og Ráðgjafaþjónustu með aðal áherslu á hönnun og ráðgjöf á lagna- og loftræsikerfum.
Að baki Kvarða
- Guðmundur Pétursson er eigandi og eini starfsmaður Kvarða ehf.
Guðmundur er pípulagningameistari og vann við þá iðn í um áratug. Árið 2002 hóf hann nám í Ingeniorhojskolen Odense Teknikum (IOT) og útskrifaðist árið 2006 sem byggingartæknifræðingur með áherslu á burðarþol.
Þar sem áhugasvið hans hefur ávallt legið í öllu sem viðkemur lagnakerfum þá sat hann samhliða námi í burðarþolsfræði þá kúrsa sem í boði voru og tilheyrðu hönnun lagna- og loftræsikerfa.
Eftir útskrift, hóf hann störf á lítilli verkfræðistofu þar sem hann sinnti ýmsum störfum á framkvæmda- og hönnunarsviði m.a. verkefnastjórnun, ástandsskoðun, matsmálum, kostnaðaráætlun en þó mest við lagnahönnun.
Haustið 2022 hætti hann störfum hjá verkfræðistofunni sem hann hafði starfað frá árinu 2006 og hóf sjálfstæðan rekstur með áherslu á hönnun lagna og loftræsikerfa.

